Nú í aðdraganda kosninga þá eru margir sem ég þekki að hamast við að finna út (þó þeir séu eflaust í undantekningartilvikum búnir að ákveða sig) hvað skuli kjósa. Á síðunni Helpmevote.eu er hægt að komast á svokallaðan kosningavita og sjá hvar maður stendur gagnvart öllum þeim framboðum sem hægt er að velja á milli í vor. Read More »
Nýjasta meistarverk Daft Punk
Ég hef alltaf verið mikill Daft Punk aðdáandi. Myndin þeirra Interstella 5555 var alveg mögnuð svo ekki sé nú talað um framistöðu þeirra í Tron: Legacy árið 2010. Nú fyrir nokkrum dögum kom út sýnishorn af því sem koma skal hjá þeim. Þar hafa þeir fengið ýmsa magnaða kappa með sér í lið Read More »
Á Eurovision-aðventu…
Þá er hin árlega Eurovision aðventa hafin og flestir þeir sem eitthvað spá í keppnina umþaðbil að pissa á sig af spenningi. Árið 2010 þegar kepnin var haldin í Noregi vann söngkonan Lena Meyer-Landrut keppnina með lagið Satellite. Venju samkvæmt átti hún þá að flytja lagið í keppninni 2011 en þar sem hún var að undirbúa sig til þess að keppa aftur fyrir hönd Þýskalands kom þessi útgáfa af laginu út. En það er einn af kynnum keppninar árið 2011, Stefan Raab sem flytur það ásamt Bigband-rockabillybandi. Að mínu mati er þetta langflottasta opnunarathöfn á Eurovision sem ég man eftir. Ég fæ a.m.k. alltaf svolitla gæsahúð þegar ég sé þetta myndband. Það eina sem mér leiðist hinsvegar við þetta myndband eru kvenkynskynnarnir, þær eru eitthvað svo leiðinlega gervilegar. Read More »
Skipt um slöngu á reiðhjóli.
Ég hef undanfarin sumur hjólað mjög mikið og alltaf hjólað meira og meira eftir því sem árin líða. Í fyrrasumar (apríl – október) hjólaði ég 840km og árið þar áður voru þetta rétt um 500km. Read More »
John Grant – GMF
John Grant er svona minn uppáhalds tónlistarmaður um þessar mundir. Það er svolítið merkilegt að sjá hvernig hann kom eins og lítil sprengja inn á Íslenskan markað fyrir ekki svo löngu. John kom hingað upphaflega til að spila á IcelandAirwaves í fyrra en hefur verið hérna síðan. Read More »





